Vill spara hundruð milljóna með rafrænni þjónustu Boði Logason skrifar 18. júlí 2012 11:53 Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Íslendingar ættu að vinna af fullri alvöru að taka upp rafrænar kosningar.
Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Íslendingar ættu að vinna af fullri alvöru að taka upp rafrænar kosningar. Framkvæmd kosninga sé gamaldags og miðað við þá tækni sem er til staðar sé hægt að auka möguleika á þessu sviði og spara hundruð milljóna. Í leiðara Karls í blaðinu Sveitarstjórnarmál vekur hann athygli á rafrænum kosningum. Í samtali við fréttastofu segir Karl að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi fullan hug á því að vinna að framkvæmd rafrænna kosninga á næstu árum. „Við eigum að kanna alla möguleika á að auka rafræna þjónustu í opinbera geiranum. Ríkisskattstjóri er kominn mjög framarlega í þessu, það er mjög gott dæmi um hvernig hægt er að þróa þetta áfram á þennan hátt," segir Karl en þar vísar hann í hvernig fólk getur skilað skattaskýrslu á internetinu. Hann segir að margar kosningar séu framundan á næstu árum og það kosti hundruð milljóna. „Ég held að við gætum sparað gríðarlega mikla peninga þegar fram í sækir. Vissulega væri einhver stofnkostnaður en þetta myndi alltaf skila sér til baka. Bara það að fækka bréfasendingum spörum við okkur hundruð milljóna til langs tíma," segir Karl. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu er gert ráð fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs í haust kosti 250 milljónir króna, svo dæmi séu tekin. Karl segir að það hljóti að vera komið að þeim tímapunkti að ríki og sveitarfélög taki höndum saman og leitist við að tölvuvæða kosningar hér á landi og auka þannig rafræna þjónustu. „Það eru ótal tækifæri til að þróa á þessu sviði." Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hefur í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga skipað stýrihóp til að fjalla um rafræna stjórnsýslu. Hópurinn hefur haldið þrjá fundi en í þeim eiga fjölmargir aðilar sæti, til dæmis tveir fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Leiðara Karls í blaðinu Sveitarstjórnarmál má lesa hér.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira