Innlent

Grænt ljós á Perluna fyrir náttúrusýningu

Svavar skrifar
Á næstunni verður lögð fram tillaga á Alþingi um að náttúruhús rísi í Vatnsmýrinni, eins og margir telja besta kostinn.fréttablaðið/gva
Á næstunni verður lögð fram tillaga á Alþingi um að náttúruhús rísi í Vatnsmýrinni, eins og margir telja besta kostinn.fréttablaðið/gva
Starfshópur á vegum mennta- og menningarráðuneytisins og Reykjavíkurborgar telur mögulegt að setja upp náttúruminjasýningu Náttúruminjasafns Íslands í Perlunni. Slík sýning útheimtir hins vegar breytingar á húsnæðinu, að mati hópsins. Nú verða teknar upp viðræður til að kanna betur fjárhagslegan grundvöll hugmynda starfshópsins en Perlan hentar ekki sem framtíðarhúsnæði fyrir safnið að óbreyttu.

Þetta kom fram í svari Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra á mánudag við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, um stöðu Náttúruminjasafns Íslands (NMÍ).

Fyrirspurn Sivjar helgast af þeirri stöðu að safnið er húsnæðislaust frá og með áramótum, eins og Fréttablaðið fjallaði um 29. september. Benti Siv á að staða safnsins væri með öllu ótæk í ljósi þess að um eitt af þremur höfuðsöfnum þjóðarinnar væri að ræða.

Mennta- og menningarráðuneytið og Reykjavíkurborg skipuðu í ágúst starfshóp til að skoða möguleika á því að koma upp náttúruminjasafni eða sýningu á vegum NMÍ í Perlunni. Hópurinn hefur lokið störfum og sett fram hugmynd um að þar verði sett upp náttúruminjasýning.

Ráðherra gat þess að hópurinn teldi það miklu skipta hvaða hlutar Perlunnar yrðu ætlaðir fyrir sýningu, ef af henni yrði. Nauðsynlegt væri að smíða millihæð í hluta hins opna rýmis til að hugmyndin gengi upp. Frágangur mannvirkisins og smíði millihæðar væri því forsenda þess að húsið hentaði fyrir grunnsýningu höfuðsafns um náttúruminjar.

Hópurinn telur jafnframt nauðsynlegt að einn eða fleiri tankar verði hluti sýningarrýmis til lengri tíma eigi hugmyndin að vera raunhæf. Hvað framtíð safnsins áhrærir þá er Perlan ekki talin henta til lengri tíma án viðbygginga.

Nú verða teknar upp viðræður ríkis og borgar til að kanna betur fjárhagslegan grundvöll þeirra hugmynda sem starfshópurinn setti fram.

Í lok umræðna tók Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, til máls. Þar greindi hún frá því að á næstu dögum myndi hún leggja fram þingsályktunartillögu um að hafinn yrði að nýju undirbúningur að byggingu náttúruhúss í Vatnsmýri, eins og lengi var stefnt að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×