Innlent

Íbúafundur hafnar háspennuloftlínu fyrir norðan

Fundur íbúa á áhrifasvæði háspennuloftlínu, sem Landsnet fyrirhugar að leggja á milli Blöndu og Akureyrar, og haldinn var um helgina, hafnar hugmyndinni.

Hinsvegar er lagt til að leitað verði leiða til að leggja línuna í jörð. Fundarmenn telja að fyrirhuguð lína styrki ekki landbúnað eða annan almennan atvinnurekstur á því svæði.

Henni sé ekki ætlað að sinna raforkuþörf svæðisins eða almennings í landinu og byggi hugmyndin á óskilgreindri stóriðju einhvernstaðar á landinu í óskilgreindri framtíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×