Lýsing segir dóminn ekki eiga við sig - Helgi vill frekari svör Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 22. október 2012 18:26
Lýsing telur að dómur Hæstaréttar á fimmtudag um gengistryggð lán eigi ekki við um sitt lánasafn og mun því ekki ráðast í endurútreikninga. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir Lýsingu þurfa að útskýra þá afstöðu nánar og hefur kallað forsvarsmenn fyrirtækisins aftur á fund nefndarinnar ásamt lögfræðingum. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis fundaði með forsvarsmönnum Lýsingar og Dróma í dag vegna vaxtadóms Hæstaréttar á fimmtudag en samkvæmt dómnum var Arion banka óheimilt að reikna vexti afturvirkt af ólöglegum gengistryggðum lánum, þar sem stefnandi, Borgarbyggð í þessu tilviki, hafði staðið í skilum og fullnaðarkvittanir lágu fyrir. „Drómi hefur þegar hafið vinnu við endurútreikning ólöglegra gengislána eins og Landsbanki Íslands og ég vona að hinir bankarnir fylgi í kjölfarið en Lýsing hins vegar telur að dómurinn frá því á fimmtudag eigi ekki við um þeirra lánasafn," segir Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Helgi segir þá afstöðu Lýsingar koma sér á óvart og leitaði verði frekari svara. „Ég tel í fljótu bragði að fordæmisgildi dómsins á fimmtudaginn fyrir bílalán og önnur slík lán sé umtalsverður og við höfum þess vegna kallað Lýsingu fyrir á okkar fund aftur á miðvikudaginn og munum þar fara yfir málin með fulltrúum þeirra á nýt og fá þar sérfræðinga á lögfræðisviði til þess að leiðbiena okkur í málinu og kalla eftir því að þeir leiðrétti það sem hægt er að leiðrétta sem allra fyrst," segir Helgi. Hann segir bankana þurfa að uppfylla loforð við sína viðskiptavini með því að hefja endurútreikning. „Bankarnir hvöttu fólk til þess að koma og semja til þess að gera eitthvað í sínum málum og lofuðu að það myndi alltaf njóta þess ef að það kæmi betri réttur seinna og þess vegna hlýtur það fólk líka að njóta sömu stöðu og sömu kjara eins og þeir sem að borguðu," segir Helgi að lokum.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Sjá meira