Innlent

Innbrot í ljósmyndaverslun: Hryllingur að lenda í þessu

Ljósmyndaverslun á Laugavegi sem brotist var inn í nótt var einungis búin að vera opin í sex vikur. Vörum fyrir hátt í milljón var stolið.

Það var um hálf þrjú í nótt sem eigandi verslunarinnar Reykjavík Foto var vakinn af Securitas þar sem þjófavarnarkerfi verslunarinnar hafði farið í gang. Þegar hann kemur á vettvang er búið að brjótast inn í verslunina og stela myndavélum og spjaldtölvu. Þjófarnir notuðu stóran múrstein til að brjóta glerið í hurðinni og komust þannig inn í verslunina.

Eigandi verslunarinnar Bjarki Þór Reynisson var enn í sjokki þegar fréttastofa leit við hjá honum í dag.

„Ég sé að það er búið að taka myndavélar og í raun næstum allt sem við höfðum inni," segir Bjarki Þór Reynisson, eigandi Reykjavík Foto.

Bjarki segir þjófana hafa gengið skipulega til verks og innbrotið einungis tekið nokkrar mínútur en myndavélarnar voru allar fastar í keðjur. Hann segir tjónið vera í kringum níu hundruð þúsund krónur með skemmdum.

„Erfitt þegar maður er nýbúinn að opna, opnaði fyrir sex vikum, búinn að hafa draum að opna svona verslun mjög lengi og elska þetta svo mikið, og að lenda í þessu það er hryllingur," segir Bjarki Þór.

Ekki er víst að tryggingar muni bæta tjónið en Bjarki heldur þó í vonina. Hann biður fólk um að fylgjast með myndavélum sem eru til sölu á netinu þar sem þjófarnir geti reynt að koma þeim í verð en nú þurfi hann bara að halda áfram. „Ég læt ekki einhverja svona vitleysinga stoppa mig," segir Bjarki Þór að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×