Innlent

Björguðu útlendingum úr vandræðum á Sprengisandi

Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða útlendinga, sem höfðu lent í vandræðum á Sprengisandi, sem er lokaður.

Þeir höfðu fest bíl sinn, sem ekki var búinn til aksturs á þessum slóðum miðað við aðstæður þar.

Björgunarleiðangurinn gekk vel og amaði ekkert að útlendingunum, þegar komið var til byggða undir morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×