Innlent

Skúli vill funda um svarta vinnu og skattsvik

Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingar hefur óskað eftir því að fjallað verði um svarta atvinnustarfssemi og skattaundanskot í efnahags- og viðskiptanefnd við fyrsta tækifæri í framhaldi af vísbendingum um að slík starfssemi færist í vöxt.

Hann óskar eftir því að á fundinn mæti Ríkisskattstjóri, Skattrannsóknastjóri, Tollstjóri og fulltrúar frá Vinnumálastofnun, fjármála- og efnahagsráðuneyti og velferðarráðuneyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×