Sjö ráðherrar brotið jafnréttislög Hugrún Halldórsdóttir skrifar 2. september 2012 18:45
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segist ekki hafa íhugað að segja af sér vegna brota hans á jafnréttislögum. Sjö ráðherrar hafa í gegnum tíðina gerst brotlegir við lögin vegna ráðningar karls í stað konu. Í fréttum okkar í gær sagði formaður Jafnréttisráðs sérkennilegt að yfirmanni dómsvalds þyki í lagi að hann brjóti mannréttindalög og vísaði þar í orð Ögmundur um að huglægt mat hafi að hluta ráðið því að karl var ráðinn í stöðu sýslumannsins á Húsavík. „Mér finnst ekki í lagi að brjóta mannréttindalög, mér finnst ekki í lagi að brjóta jafnréttislög. Eins og niðurstaða kærunefndar jafnréttisnefndar gengur út á. Auðvitað þykir mér það miður að hún skuli hafa komist að þessari niðurstöðu. Ég taldi mig, og tel mig reyndar enn, hafa á fullkomlega faglegum forsendum tekið ákvörðun með hliðsjón af jafnréttislögum og þeim reglum sem um þau gilda," segir Ögmundur. Þrátt fyrir harða gagnrýni sér Ögmundur ekki ástæðu til að biðjast afsökunar en hann hefur verið' hvattur til að íhuga afsögn, þar á meðal af formanni VG í Reykjavík. Hefurðu íhugað afsögn? „Nei, það hef ég ekki gert." Tveir ráðherrar í sitjandi ríkisstjórn hafa gerst brotlegir við jafnréttislög, Ögmundur og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, en mál þeirra eru þó ekki einsdæmi, því fleiri ráðherrar hafa gerst brotlegir við lögin vegna ráðningu karls í stað konu, þar á meðal Guðni Ágústsson í landbúnaðarráðherratíð sinni, Björn Bjarnason, í tíð sinni sem dómsmálaráðherra, Sólveig Pétursdóttir, þegar hún gengdi starfi dóms- og kirkjumálaráðherra, Halldór Ásgrímsson sem utanríkisráðherra og Páll Pétursson sem félagsmálaráðherra . Við þetta má bæta að í máli Sólveigar skipaði sérstök valnefnd karl í Ólafsvíkurprestakall, en hún hafði hið formlega skipunarvald og segir í áliti kærunefndar jafnréttismála að ráðherra „beri endanlega ábyrgð á því að gætt sé réttrar málsmeðferðar við val á prestsefni og að farið sé að jafnréttislögum."
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira