Samningur við Nubo ræddur á ríkisstjórnarfundi 4. maí 2012 12:28 Ögmundur hefur enn efasemdir
Fyrirhuguð leiga kínverska fjárfestisinins Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum var rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir samninginn sem bjóða á Nubo hafi ekki verið lagðan fyrir fundinn. Iðnaðarráðherra, sem hefur forræði yfir málinu, kynnti stöðuna fyrir ráðherrum ríkisstjórnarinnar í morgun. Ögmundur Jónasson er meðal þeirra ráðherra sem þar óskaði eftir frekari upplýsingum. „Við höfum ekki séð samninginn. Samningurinn var í rauninni ekki kynntur heldur svona farið almennum orðum um málið.En að sjálfsögðu hljóta menn að vilja sjá þennan samning," segir hann. „Þetta er meira en að segja það að ráðstafa landi, hvort sem það er eignarlandi eða afnotaréttur að landi, sem liggur að öræfum Íslands, að ráðstafa slíkum rétti út fyrir landssteinana. Það verður ekkert gert bara eins og að drekka úr vatnsglasi. Við þurfum að skoða það mjög vandlega. Sú umræða hófst í morgun en henni var ekki lokið," segir Ögmundur. Meðal þess sem Ögmundur óskaði upplýsinga um er sú fyrirtækjasamsteypa sem þarna á í hlut, nánari gögn um áformin og hvernig að þessu verði staðið. Sem kunnugt er lagðist Ögmundur mjög gegn kaupum Nubo á Grímsstöðum, og hefur verið rætt um að verið sé að fara einskonar bakdyraleið með því að leigja honum landið. Mál Nubo hefur áður verið rætt á ríkisstjórnarfundi. „Þetta er í öðrum farvegi núna. Nú eru menn að skoða lög sem heimila ívilnanir fyrir erlendar fjárfestingar, og með þeim hætti er hægt að ná kannski sömu markmiðum og áður var rætt um, en í öðru ferli. Ég hef verið með ákveðin varnaðarorð uppi og það hefur ekkert slegið á mínar efasemdir í þessu máli," segir Ögmundur.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Sjá meira