Innlent

Umferðartafir á Suðurlandsvegi

Búast má við þó nokkrum umferðartöfum á Suðurlandsvegi við Skarphól austan við Dyrhólaveg, vegna flutningabifreiðar sem er þar út af veginum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þar segir að unnið verður við að ná bifreiðinni upp næstu klukkustundirnar og er reiknað með að það verk taki eitthvað fram á morguninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×