Suður-amerísk stemning Trausti Júlíusson skrifar 11. desember 2012 12:00 >Latínudeildin er tvöföld latín-plata með nýjum lögum eftir Ingva Þór Kormáksson.
Tónlist. Ingvi Þór Kormáksson og ýmsir flytjendur. Latínudeildin. Sögur. Latínudeildin er tvöföld latín-plata með nýjum lögum eftir Ingva Þór Kormáksson. Það eru sömu lögin á báðum plötunum, en á annarri eru textarnir á íslensku, á hinni á ensku. Stefán S. Stefánsson útsetti. Í hljómsveitinni er valinn maður í hverju rúmi og um sönginn sjá sjö söngkonur og tveir söngvarar. Á meðal söngkraftanna eru Eivör Pálsdóttir, Mjöll Hólm, Guðrún Gunnarsdóttir og Þór Breiðfjörð. Ingvi Þór er duglegur lagasmiður. Hér eru sextán lög, mörg þeirra stórfín. Textar plötunnar eru eftir ýmsa höfunda, Ingvi Þór á nokkra af íslensku textunum, m.a. textann í hinu bráðskemmtilega opnunarlagi Havana sem Guðrún syngur. Hljómsveitarfélagi Ingva, JJ Soul, semur hins vegar alla ensku textana. Tvö síðustu lögin á ensku útgáfunni eru án söngs, en gítarleikarinn Eðvarð Lárusson og saxófónleikarinn Stefán S. Stefánsson fá þar tækifæri til að láta ljós sitt skína. Þó að þessi lög séu ekki öll tóm snilld og platan verði seint talin frumleg eða framsækin þá er hún samt ágætlega heppnuð og rennur ljúft í gegn. Eins og algengt er í latín-tónlist þá er djassinn ekki langt undan. Það er svolítið gaman að bera saman íslensku plötuna og þá ensku. Maður hlustar meira eftir textunum á þeirri íslensku. Þeir eru mun skemmtilegri en ensku textarnir. Þegar maður hlustar á ensku plötuna verða textarnir meira aukaatriði og maður einbeitir sér eingöngu að tónlistinni. Á heildina litið er þetta fín plata hjá Ingva Þór. Hún ætti að falla í kramið hjá þeim sem hafa gaman af ljúfri latín-tónlist. Það skemmir svo ekki fyrir að SOS Barnaþorpin fá hluta af söluverði plötunnar. Niðurstaða: Vel unnin latín-plata. Öll lögin eru bæði á íslensku og ensku.“Þó að þessi lög séu ekki öll tóm snilld og platan verði seint talin frumleg eða framsækin þá er hún samt ágætlega heppnuð og rennur ljúft í gegn.“ Fréttablaðið/Anton
Gagnrýni Mest lesið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Óbilandi trú á eigin ágæti Er Ormstunga djarfasta sýning ársins? Rasistar í sumarbústað Atvinnulaus aumingi trompar dauðakölt Gagnrýni ársins 2025: Jólahelvíti, ómerkilegir þættir og vonbrigði á stóra sviðinu Við þurfum að ræða Sydney Sweeney Sjá meira