Verjandi segir Lárusi hafa gengið gott eitt til Stígur Helgason skrifar 10. desember 2012 15:13 Lárus Wedling og Óttar Pálsson fyrir rétti.
Ekkert vitni í Vafningsmálinu hefur borið um að Lárus Welding og Guðmundur Hjaltason hafi haft nokkuð með það að gera að lána Milestone tíu milljarða föstudaginn 8. febrúar 2008. Því er útilokað að telja sannað að þeir hafi gerst sekir um umboðssvik með þeirri lánveitingu. Þetta sagði Óttar Pálsson, verjandi Lárusar, í tveggja og hálfrar klukkustundar ræðu sinni í Héraðsdómi Reykjavíkur sem hann lauk fyrir stundu. Deilt er um hver tók ákvörðun um það, síðdegis umræddan föstudag, að breyta svokallaðri ádráttarbeiðni á þann veg að lánið rynni ekki til félagsins Vafnings heldur til Milestone. Ljóst þykir að það hafi verið gert á bilinu 14.50 til 15.03 þennan föstudag og Óttar sagði í ræðu sinni að engar vísbendingar væru um nærveru sakborninganna í bankanum á þessu þrettán mínútna bili. Óttar ýjaði að því að Halldór Halldórsson, viðskiptastjóri Milestone innan bankans, hafi alfarið borið ábyrgð á því að breyta skjalinu á síðustu stundu. Halldór hefur viðurkennt að hafa handskrifað breytingarnar inn á skjalið. Óttar vakti athygli á minnisleysi Halldór fyrir dóminum - hann hefði ekkert munað annað en að hann hefði ekki sjálfur tekið þessa ákvörðun upp á sitt einsdæmi.Fræðileg fjártjónshætta „Vissulega er það svo að öllum lánveitingum fylgir ákveðin fjártjónshætta," sagði Óttar, en áréttaði að lánið hefði verið veitt í þágu Glitnis, enda séu flestir sammála því að það hefði haft slæmar afleiðingar fyrir Glitni ef Þáttur Internetional hefði ekki getað staðið í skilum með lánið til Morgan Stanley sem Milestone-lánið átti að greiða upp. „Glitnir varð ekki fyrir fjártjóni vegna lánveitingar til Milestone umrætt sinn. Um það verður ekkert þrætt," sagði Óttar. Lánið hafi verið greitt upp strax næsta virka dag eftir að það var veitt með nýju lánsfé til Vafnings. Fjártjónshættan af láninu sem ákært er fyrir hafi einungis verið fræðileg en ekki raunveruleg. „Það verður ekki horft fram hjá fjártjónshættunni af því að lána ekki," bætti hann svo við. „Hvatir umbjóðanda míns voru virðingarverðar - honum gekk gott eitt til," sagði Óttar undir lok ræðu sinnar. Hann sagði að ef svo ólíklega vildi til að til refsingar kæmi ætti að skilorðsbinda hana.Ólíkt Exeter-málinu Saksóknari vísaði í ræðu sinni í morgun til Exeter-máls sérstaks saksóknara, þar sem Jón Þorsteinn Jónsson og Ragnar Z. Guðjónsson voru dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir eins milljarðs umboðssvik. Óttar sagði þessi mál hins vegar alls kostar ósambærileg. Exeter-málið hefði verið skýrt dæmi um umboðssvik þar sem ásetningurinn hafi verið mjög einbeittur. Það eigi ekki við um Vafningsmálið, og benti hann á því til stuðnings að Lárus hafi ekki átt nokkurra persónulegra hagsmuna að gæta með lánveitingu af því tagi sem fjallað er um í ákærunni, hvorki beinna né óbeinna.Gagnrýnir rannsóknina harðlega Rannsókn málsins sætti harðri gagnrýni í ræðu Óttars. Hann tiltók tíu atriði sem hann taldi til annmarka á rannsókninni. Mörg þeirra sneru að aðalrannsakendum þess, Jóni Óttari Ólafssyni og Guðmundi Hauki Guðjónssyni, sem sæta nú rannsókn ríkissaksóknara, grunaðir um að hafa selt þrotabúi Milestone trúnaðarupplýsingar sem þeir öfluðu sér í starfi sínu hjá sérstökum saksóknara. Þetta taldi Óttar valda bersýnilegu vanhæfi rannsakendanna, enda hafi þeir haft beina fjárhagslega hagsmuni af því að ákæra yrði gefin út í málinu. Hann fór einnig yfir það að hvaða leyti hann teldi skorta á rannsókn málsins, sem hann telur ekki meira en hálfklárað verk. Hann nefndi til dæmis að tíu vitni saksóknara hafi í fyrsta sinn gefið skýrslu um málið fyrir dómi við aðalmeðferð málsins í síðustu viku. Þau vitni hafi getað veitt mjög mikilvægar upplýsingar og ótrúlegt væri að þau hefðu ekki verið kölluð til skýrslugjafar á fyrri stigum.
Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi og Faxaflóa Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi og Faxaflóa Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Sjá meira