Gagnrýnir málþing harðlega Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 10. nóvember 2012 12:16 Valgerður Bjarnadóttir.
Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, gagnrýnir harðlega málþing um gerð nýrrar stjórnarskrár sem fram fór í gær. Hún segir ótrúlegt hvernig fræðimenn við Háskóla Íslands hafi leyft sér að snúa út úr í málinu. Á málþinginu kom fram hörð gagnrýni frá prófessorum á borð við Gunnar Helga Kristinsson stjórnmálafræðing og Björgu Thorarenssen við lagadeildinni sem töldu að betra hefði verið að fara hægar í sakirnar og hafa meiri umræðu í þjóðfélaginu áður en farið hefði verið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá hafi spurningarnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni verið of almennt orðaðar og sagði Gunnar Helgi að þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið til þess fallin að þagga niður í gagnrýnisröddum í málinu. „Mér fannst þetta nú mjög skrýtið þetta og kannski ekki mjög fræðilegt ef ég má komast þannig að orði," segir Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar - og eftirlitsnefndar. Hún segir auðheyrt að prófessorarnir hafi allt á hornum sér hvað varðar vinnuna við stjórnarskrárbreytingarnar. „Mér finnst ekki mjög fræðilegt að segja að það sé verið að reyna að þagga niður í fólki þegar við berum þessar spurningar. Við erum að vanda okkur eins mikið og við getum. Prófessorar við Háskóla Íslands ættu að gera það líka," segir hún. Nefnd sérfræðinga sem hefur haft það verkefni með höndum að gera tillögu að nýju frumvarpi byggðu á tillögum stjórnlagaráðs og niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar mun skila af sér á mánudaginn kemur. Valgerður segir að betur hefði farið á því hjá háskólamönnunum að bíða með gagnrýni uns frumvarpið komi komi fram. „Eins og þú heyrir á mér þá er mér mikið niðri fyrir og mér finnst háskóli Íslands hafa pínulítið brugðist mér," segir Valgerður sem bendir á að frumvarpið eigi síðan eftir að fá ítarlega umræðu í þinginu og að lokum þurfi tvö þing að til að samþykkja breytingarnar. „Að fræðimenn leyfi sér að snúa út úr því finnst mér ótrúlegt," segir Valgerður að lokum.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira