Innlent

Polfoss sigldi á fullri ferð í strand

Norskir fjölmiðlar segja að Polfoss, eitt af skipum Eimskips, hafi siglt á fullri ferð, eða á 13 hnúta hraða,  í strand við Austbö í Alstahaug í norðurhluta Noregs.

Fram kemur í frétt norska ríkisútvarpsins um strandið að níu manna áhöfn sé um borð í Polfoss en ekkert ami að henni. Þá var skipið lestað með 1.800 tonnum af frystum fiski.

Engar skemmdir virðast á skipinu og engin olíuleki. Ekki er vitað um ástæður þess að Polfoss strandaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×