Afleitar aðstæður á vegum BBI skrifar 1. nóvember 2012 20:02 Mynd úr safni. Mynd/Vilhelm
Ferðaveður á landinu er afleitt og er fólki ráðið frá miklum ferðalögum eins og stendur. Hvarvetna bætir í vind og víða eru hálkublettir og þæfingsfærð. Hálendið í heild sinni er talið ófært, umferðartafir víða um land og loks eru vegfarendur í ákveðnum landshlutum sérstaklega varaðir við hreindýrum.Rok Með kvöldinu bætir enn frekar í vind og ofankomu um landið austan og norðaustanvert og aðstæður á vegum þar verða því afleitar, N 18-25 m/s og snjókoma og skafrenningur, og enn hvassara í vindhviðum. Um landið norðvestanvert bætir í vind í kvöld, og fyrir miðnætti verður væntanlega komin N 18-25 m/s, hvassast á fjallvegum s.s. Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Holtavörðuheiði og Vatnsskarði. Áframhaldandi éljagangur og skafrenningur takmarkar skyggni. Á Suðausturlandi hvessir einnig, og má búast við N 20-25 m/s undir Vatnajökli og Eyjafjöllum. Þar má búast við vindhviðum um og yfir 40 m/s. Skyggni á þessum slóðum, sem og annar staðar á Suðurlandi hamlast vegna sand og öskufoks, og seint í nótt má gera ráð fyrir éljagangi frá Breiðamerkursandi og til austurs. Suðvestan og vestantil er áfram hvasst, N 18-23 m/s og vindvhiður 30-35 m/s, en hvassar vindstrengjum við fjöll s.s. á sunnanverðu Snæfellsnesi og á Kjalarnesi.Færð og aðstæður Óveður er á Kjalarnesi og við Akrafjall. Það eru hálkublettir á Gjábakkavegi og í sunnanverðum Hvalfirði. Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og skafrenningur á flestum leiðum. Hálka og skafrenningur er á Bröttubrekku. Hálkublettir og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er þæfingsfærð og stórhríð á Steingrímsfjarðarheiði og snjóþekja og skafrenningur á Þröskuldum. Snjóþekja og stórhríð er á Gemlufallsheiði. Hálka eða hálkublettir og éljagangur eða skafrenningur er á öðrum leiðum. Ófært og stórhríð er á Klettshás. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði, einnig er ófært á Veiðileysuhálsi. Á Norðvesturlandi er hálka eða hálkublettir og skafrenningur á flestum leiðum. Snjóþekja og stórhríð er á Þverárfjalli og á Vatnsskarði. Á Norðausturlandi er hálka og skafrenningur á Siglufjarðarvegi, þæfingsfærð og stórhríð á Öxnadalsheiði og Víkurskarði. Þungfært og éljagangur er í Dalsmynni. Ófært er á Hólasandi. Snjóþekja og stórhríð er á Mývatnsöræfum, snjóþekja og óveður á Hófaskarði og hálka og óveður á Sandvíkurheiði. Hálka og skafrenningur eða éljagangur er á öðrum leiðum. Á Austurlandi er ófært á Fjarðarheiði, í Oddskarði og á Fagradal og er beðið með mokstur, ófært er líka á Breiðdalsheiði og Öxi. Snjóþekja, hálka og stórhríð er á Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði. Þungfært og skafrenningur á Vatnsskarði eystra. Hálka og óveður er á milli Breiðdalsvíkur og Hafnar. Snjóþekja eða hálka og snjókoma eða skafreningur er á öðrum leiðum. Á Suðaustur- og Suðurlandi er óveður við Lómagnúp og undir Eyjafjöllum. Hálkublettir eru frá Kvískerjum að Vík.Umferðartafir Unnið er að viðgerð á brúargólfi Borgarfjarðarbrúar og er unnið á 2-3 bilum í einu. Búast má við einhverjum töfum en umferð er stýrt með ljósum. Þarna er unnið með vatn og því má búast við hálku á vinnusvæðinu í frosti. Einnig er verið að breikka þverun Borgarfjarðar beggja vegna brúarinnar. Það á ekki að valda töfum en hraði er þó tekinn niður og vegfarendur þurfa að gæta varúðar. Áætlað er að verkið standi til 15. nóvember.Hálendið Ekki er fylgst með færð á hálendinu þegar komið er fram á þennan tíma en talið er að hálendisvegir séu flestir ófærir almennri umferð. Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Upplýsingarnar eru frá Veðurstofunni.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira