Bóndi á Berjanesi: "Ég vona að ég lifi þetta af“ 2. nóvember 2012 11:42 Rjúfa þurfti þjóðveginn til að hlífa brúnni yfir Markarfljót vegna hlaups í ánni þegar gaus í Eyjafjallajökli árið 2010. fréttablaðið/vilhelm „
Þetta er það versta sem ég hef upplifað í mörg ár - við erum bara tvö hérna heima og þykjumst vera heppin að vera heil á húfi," segir Vigfús Andrésson, bóndi á Berjanesi í Landeyjum á Suðurlandi. Mikið óveður gengur nú yfir allt landið, eins og flestum ætti að vera kunnugt um. „Það er bara stjörnuvitlaust veður hérna. Í morgun fauk traktor á hliðina, og svo slitnaði rafmagnslínan sem liggur hérna í átt að bænum. Þannig það er rafmagnslaust," segir Vigfús. Hann segir óþægilegt að vera fastur inni í rafmagnslausu húsi „en það er verst með eignirnar. Það eru fjárhús sem standa nærri þjóðveginum hérna uppfrá, og mér sýnist þau vera fokin. Það eru hús sem eru búin að standa í 50 til 60 ár. Það er gífurlegt rok hérna, ég er alveg viss um að mestu hviður fari alveg upp í 90 metra á sekúndu, það er ég viss um," segir Vigfús bóndi. „Það er feiknalegt öskuryk í loftinu, samt eru smábílar að keyra eftir þjóðveginum. Mér finnst að löggan hafi átt loka veginum bara með slá og hafa vit fyrir fólki. Það er skelfilegt að sjá þessa litlu smábíla fara þarna eftir veginum," segir hann. Mikill gegnumtrekkur er í húsinu. „Það er svo sem ekkert óvenjulegt í svona verði, en það eru þónokkuð mörg ár síðan að svona vont veður var hérna." segir Vigfús og lýkur samtali við blaðamann á orðunum: „Ég vona að ég lifi þetta af."
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira