Heilu byggðarlögin lokuð vegna óveðurs GS skrifar 2. nóvember 2012 12:16 Þorgeir Arnórsson á Akureyri tók þessa mynd um klukkan 9 í morgun. Hann segir að það gangi í kviðum.
Heilu byggðarlögin á Vestfjörðum, Norðurlandi og á Austurlandi eru einangruð þar sem samgöngur í lofti, láði og legi eru lamaðar. Allir fjallvegir á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi eru ófærir og víða geysar þar stórhríð þannig að Vegagerðarmenn geta ekki hafið mokstur. Frá Höfn í Hornafirði og vestur undir Hvolsvöll er mun minni snjór, en þó ekkert ferðaveður vegna mjög snarpra vindhviða, sandfoks og öskufoks. Fært er á milli þéttbýlisstaða á suðvesturhorninu en bálhvasst á Hellisheiði, í þrengslum, á Mosfellsheiði og á Grindavíkurvegi. Allt innanlandsflug hefur legið niðri í morgun. flugfélag Íslands ætlar að kanna aðstæður upp úr klukkan þrjú og Ernir hafa ekki flogið í morgun. Horfur eru ekki góðar á síðdegisflugi.Á Reyðarfirði er snarvitlaust veður og hjá Ásdísi Jónsdóttur, sem sendi þessa mynd, er hvorki hægt að komast út um svalar- né útidyrahurð vegna snævar sem birgir. Snjómokstri var hætt snemma í morgun og skólahaldi hefur verið aflýst.Hvorki Breiðafjarðarferjan né Grímeyjarferjan hafa siglt í morgun, en Herjólfur fór í fyrstu ferð en átti í erfiðleikum með að leggjast að bryggu í Eyjum vegna hvassviðris. Verið er að meta hvort hann fer fleiri ferðir. Veginum á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar hefur verið lokað vegna snjóflóðahættu, en samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar er hvergi snjóflóðahætta í grennd við byggð, að minnstakosti ekki enn sem komið er, En þar á bæ er fylgst grannt með framvindu mála. Veðurstofan varar enn við vonskuveðri á öllu landinu næsta sólarhring með norðan stormi og vindhraða á bilinu 20 til 28 metrar á sekúndu með vindhviðum upp í 55 metra á sekúndu, einkum við fjöll sunnanlands. Spáð er talsverðri snjókomu snjókomu á Norður- og Austurlandi í dag. Ekkert ferðaveður verður á landinu næsta sólarhring, en vindur fer að aðeins að ganga niður um hádegi á morgun, þótt hvasst verði fram á kvöldið. en upp úr því fer að lægja á öllu landinu.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira