Olíutankar með 2 milljónum lítra skemmdust JHH skrifar 2. nóvember 2012 15:42 Aðgerðastjórn almannavarna tók til starfa í dag vegna óveðursins.
Aðgerðarstjórn almannavarna á höfuðborgarsvæðinu tók til starfa í dag vegna óveðursins. Olíutankar í Örfirisey hafa skemmst í óveðrinu. Í tönkunum eru um 2 milljónir lítra af díselolíu en ekki er talin hætta á leka úr þeim. Vel er fylgst með tönkunum og eru þeir vaktaðir. Fræðsluyfirvöld eru hvött til að vinna eftir verklagsreglum um röskun á skólastarfi. Foreldrar og forráðamenn skólabarna á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að tryggja að skólabörnin verið sótt í skólann í dag svo þau séu ekki ein á ferð í óveðrinu. Jafnframt hafa skólar verið beðnir um að tryggja að börn yfirgefi ekki skólana nema í fylgd fullorðinna. Treysti fólk sér ekki til að sækja börn sín við lok skóladags halda þau kyrru fyrir í skólanum þangað til þau verða sótt eða hægt er að senda þau heim með öruggum hætti. Veður er misjafnt eftir svæðum svo foreldrar og skólayfirvöld eru beðin að leggja mat á aðstæður hverju sinni. Fjöldi aðstoðarbeiðna hefur borist Slysavarnafélaginu Landsbjörg frá því í morgun. Alls á fjórðahundrað aðstoðabeiðnir þar af 300 á höfuðborgarsvæðinu. Yfir 20 sveitir eru að störfum á 18 stöðum á landsbyggðinni. Verst á ástandið á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er ástandið slæmt á Suðurland allt frá Þorlákshöfn að Höfn í Hornafirði. Þök eru að losna í heilu lagi, bílar eru að fjúka út af vegum brotnar rúður, tengivagnar, grindverk að brotna, skúrar að fjúka ásamt ýmsu lauslegu. Ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að upplýsa ferðamenn um hættuna sem fylgir óveðrinu. Vegna þess fjölda aðstoðarbeiðna sem borist hefur til lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita á höfðuborgarsvæðinu þarf að forgangsraða verkefnum. Fólk beðið að sýna því skilning þó aðstoð berist ekki strax, en beina skal öllum beiðnum um aðstoð til Neyðarlínunnar 112. Umferðarljós eru sumstaðar óvirk í höfuðborginni og því mikilvægt að ökumenn fari varlega í umferðinni og ennfremur má búast við einhverjum töfum hjá Strætó í dag. Álag á slysadeildinni hefur jafnframt aukist en töluvert er um beinbrot og önnur meiðsl sem rekja má til óveðursins. Fólk er því beðið að vera ekki fótgangandi nema brýn ástæða sé til.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira