Innlent

New York maraþoninu aflýst - Fimmtíu Íslendingar komnir út

BBI skrifar
New York maraþoninu sem fram átti að fara á sunnudaginn hefur verið aflýst vegna fellibyljarins Sandy. Yfir 50 Íslendingar höfðu ætlað að taka þátt í hlaupinu og fengu ekki fréttirnar fyrr en þeir voru komnir til Bandaríkjanna.

Fréttastofa hitti á Matthildi Hermannsdóttur, fararstjóra íslenska hlaupahópsins, stuttu eftir að hún lenti á JF Kennedy flugvellinum í kvöld og frétti að hlaupinu hefði verið aflýst.

„Hér er náttúrlega bara fullt af Íslendingum sem eru búnir að æfa sig í marga mánuði og búnir að kosta miklu til til að koma hingað," segir Matthildur. „Það eru allir mjög leiðir yfir þessu."

Yfirvöld höfðu fyrr í vikunni gefið út að hlaupið yrði haldið þrátt fyrir fellibylinn, þrátt fyrir rafmagnsleysi og önnur vandamál. Í dag var hins vegar ákveðið að aflýsa hlaupinu því borgaryfirvöld vildu ekki að sorgarský héngu yfir hlaupinu og þátttakendum, miðað við upplýsingar á fréttavef CNN.

Það var mikið áfall fyrir íslenska hlaupahópinn - og hlaupahópa frá öðrum þjóðum væntanlega líka - að frétta af aflýsingunni þegar hópurinn var kominn út eftir margra mánaða stífan undirbúning. Það er auk þess dýrt sport að taka þátt í New York maraþoninu, sem er eitt dýrasta hlaup heimsins.

„Það er svo erfitt að þeir tóku þessa ákvörðun ekki fyrr. Þeir höfðu möguleika til þess," segir Matthildur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×