Innlent

Um 100 sjúkraflutningar á sólarhring

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á höfuðborgarsvæðinu fóru í um það bil 100 sjúkraflutninga á síðasta sólarhring. Kristján Sigfússon, varðstjóri stoðdeildar slökkviliðsins, segir óhætt að fullyrða að þetta sé með því mesta sem gerist.

Þá er um að ræða frá klukkan hálf átta að föstudagsmorgni til klukkan hálfátta að laugardagsmorgni. Þetta gekk bara vel og okkar fólk er búið að standa sig mjög vel, segir Kristján í samtali við Vísi.

Hann segir að aukamannskapur hafi verið kallaður út á föstudagskvöldinu til þess að bregðast við hlutum sem voru að fjúka og vegna þess að farið var í eitt sjúkraflug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×