Innlent

Allar aðalleiðir færar á Norðulandi

Þessi mynd var tekin í Móasíðu á Akureyri í morgun. Eins og sjá má er beinlínis allt á kafi í snjó.
Þessi mynd var tekin í Móasíðu á Akureyri í morgun. Eins og sjá má er beinlínis allt á kafi í snjó. MYND/Magnús Árnason
Allar aðalleiðir eru nú orðnar færar á Norðurlandi. Hálka eða hálkublettur eru á helstu leiðum norðvestanlands. Um norðaustanvert landið er snjóþekja í Ólafsfjarðarmúla, á Víkurskarði og Ljósavatnsskarði.

Eins og sjá má á ljósmyndinni sem fylgir þessari frétta var beinlínis allt á kafi á Akureyri í morgun. Það var Magnús Árnason sem tók þessa ágætu mynd.

Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir á flestum aðalleiðum. Flughált er þó á Hrafnseyrarheiði og ófært er um Dynjandisheiði.

Austanlands er hálka víða og skafrenningur. Á Fjarðarheiði er snjóþekja en hálka á Oddskarði og í Fagradal. Ófært er á Vatnsskarði eystra en þar er unnið að mokstri. Einnig er ófært um Breiðdalsheiði og Öxi.

Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og sumstaðar í Borgarfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×