Áttræður íbúi á Eir sér fram á missa ævisparnaðinn Lillý Valgerður Pétusdóttir skrifar 4. nóvember 2012 19:33
Áttræður íbúi á hjúkrunarheimilinu Eir sér fram á að missa ævisparnaðinn ef félagið verður gjaldþrota. Honum brá þegar hann heyrði hversu slæm staða félagsins var og vill fá svör við því hvernig svona gat farið. Fyrir rúmum fjórum árum fluttu hjónin Sigurður og María inn í 60 fermetra öryggisíbúð sem hjúkrunarheimilið Eir á í Hlíðarhúsum í Grafarvogi. Þau létu nær allt sitt fé í staðin fyrir íbúðarétt í húsinu. Peningana áttu þau svo að fá til baka þegar þau færu aftur úr íbúðinni. Þeim brá því þegar þau heyrðu í fréttum í vikunni að Eir væri nær gjaldþrota og þau jafnvel búin að tapa öllum peningunum sínum. „Þeir eru að taka þarna peninga af okkur ef þetta er að hverfa," segir Sigurður Hólm Guðmundsson.Það hlýtur að vera vond tilfinning að þetta gæti allt jafnvel horfið? „Það er ævistarfið fyrir að vera hérna hjá þeim, það er nú það alvarlegt." Alls hafa íbúarnir lagt tvo milljarða í Eir í gegnum íbúðarétt en félagið á 207 íbúðir. Engin veð eru fyrir inneignum þeirra og því óvíst hvort þeir fái peningana sína til baka ef að Eir verður gjaldþrota. Sigurður segir þau alltaf hafa talið sig eiga íbúðina og ekki skilja að allt geti horfið ef félagið verður gjaldþrota. Stjórn Eirar ætlar að funda með íbúðarréttarhöfum í Hlíðarhúsum á morgun til að fara yfir stöðuna sem upp er komin. „Við fórum í þetta en við héldum að við værum að fara hér á góðan stað sem og er nema þetta og við verðum auðvitað að fá svar við því hvað skeiði. Þessi íbúð kostaði 18 milljónir og það er slæmt að missa það en það er nóg fyrir í þjóðfélaginu þó það sé ekki rifið af manni síðustu aurarnir." Til viðbótar við átján milljónirnar hafa þau Sigurður og María greitt í hverjum mánuði ríflega 40 þúsund krónur fyrir þjónustu og í viðhaldskostnað á húsinu. Þá greiða þau einnig fasteignagjöld og tryggingar.Þið skiljið ekki hvað hefur orðið um alla þessa peninga sem þið hafið látið í þetta? „Nei það vantar þá, það er skýringin sem við bíðum eftir. Það er slæmt ef þeir ætla að koma okkur í gröfina með þessu. Það er eina kannski sem bjargar að það er sutt að fara í garðinn. Hann er rétt hjá."
Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira