Virði vörumerkisins Ísland fer vaxandi Erla Hlynsdóttir skrifar 4. nóvember 2012 19:45
Virði Íslands sem vörumerkis fer vaxandi á næstu árum, samkvæmt alþjóðlegri úttekt. Samkvæmt henni virðist smæð þjóðarinnar aftra henni frá áhrifum á heimsvísu. Fyrirtækið FutureBrand hefur áttunda árið í röð sent frá sér úttekt á löndum heimsins þar sem þau eru metin líkt og þau væru vörumerki. Matið er byggt á upplýsingum frá á fjórða þúsund áhrifamikilla álitsgjafa og fólki sem ferðast mikið, hvort sem er vegna vinnu eða skemmtunar. Samkvæmt matinu er Sviss verðmætasta vörumerkið, og er tekið fram að þar ríki efnahagslegur stöðugleiki, ólíkt ýmsum evrópulöndum. Ísland er í 22. sæti á listanum yfir verðmætustu vörumerkin, en listinn tekur til yfir hundrað landa. Ísland fellur um þrjú sæti milli ára en bjartari tímar eru framundan því Ísland kemst á lista yfir þau 15 lönd sem skipta mestu í framtíðinni, samkvæmt spá FutureBrand. Á toppnum tróna Sameinuðu arabísku furstadæmin. Ísland er í sjöunda sæti á þessum lista. Það sem kom þjóðinni þangað er að FutureBrand spáir því að Ísland komist brátt í fyrsta sæti þegar kemur að stjórnarháttum, fjárfestingum og mannauði. Þá er Íslandi spáð tuttugasta sæti þegar kemur að vexti, 26. sæti í sjálfbærni og 22. þegar kemur að áhrifum. Í umsögn segir meðal annars að Íslendingar séu ein hæfasta og menntaðasta þjóð í heimi. Þá segir að landið sé einskonar míkrómódel fyrir samfélag í jafnvægi. Þrátt fyrir mikla kosti þá verður smæð þjóðarinnar hins vegar til þess að hún verður aldrei jafn áhrifamikil og lönd á borð við Kína og Indland.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira