Notaði móður sína í fíkniefnasmygli - aðalmeðferð 5. nóvember 2012 10:20 Sakborningar og verjendur í réttarsal við þingfestingu málsins.
Aðalmeðferð fer nú fram í Héraðsdómi Reykjaness yfir fimm einstaklingum sem eru meðal annars ákærðir fyrir að hafa staðið að innflutningi á hálfu kíló af af kókaíni til landsins. Meðal hinna ákærður er Steinar Aubertsson, sem var handtekinn í Hollandi í haust. Við þingfestingu málsins kom fram að kona á þrítugsaldri hefði játað að hafa ein skipulagt stórfellt fíkniefnasmygl í lok maí síðastliðnum. Konan fékk móður sína til að flytja ferðatösku hingað til lands frá Danmörku sem innihélt rúmlega hálft kíló af kókaíni. Móðirin var stöðvuð á Keflavíkurflugvelli við hefðbundið eftirlit. Kærasti konunnar, maður á fertugsaldri, er einnig ákærður fyrir fíkniefnainnflutninginn en hann neitaði sök.Steinar Aubertsson.Steinar Aubertsson, sem var meðal annars eftirlýstur af Interpol vegna málsins, er grunaður um að hafa staðið að innflutningnum ásamt parinu. Hann var framseldur til Íslands fyrir nokkru eftir að hann var handtekinn í Amsterdam þá grunaður um að tengjast mansali. Það mál var þó fellt niður. Ákæran er í fjórum liðum. Auk fíkniefnainnflutningsins frá Danmörku, neitaði parið að hafa lagt á ráðin um að flytja um 350 grömm af kókaíni hingað til lands og hafa fengið par á fertugsaldri til að sækja efnin til Spánar og flytja þau til Íslands. Parið, sem flutti efnin hingað til lands, eru ákærð fyrir sinn þátt í málinu en þau mættu ekki við þingfestinguna í morgun. Þá er parið ákært fyrir að hafa fjármagnað og skipulagt innflutning á 140 grömmum af kókaíni frá Danmörku til söludreifingar í ágóðaskyni hér landi. Konan neitaði sök en maðurinn játaði að hluta, þar sem hann sagðist hafa staðið einn af innflutningnum. Kókaínið afhentu þau einstaklingi í Kaupmannahöfn í febrúar á þessu ári, en ekkert varð að innflutningnum þar sem sá einstaklingur hvarf frá verkinu. Þá er konan ákærð fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í maí á þessu ári. Við leit í bíl hennar fannst lítilræði af kókaíni og marijúanna.
Mest lesið Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Hvar er Khamenei? Erlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent „Ég mun standa með mínum ráðherra“ Innlent Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Innlent Fleiri fréttir „Ég mun standa með mínum ráðherra“ „Augljóst að stjórnarandstöðunni hefur gjörsamlega mistekist“ Hafnaði öllum kröfum Ásthildar Lóu nema einni Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Sjá meira