Innlent

Tvær unglingsstúlkur krotuðu á Oddgeir

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. Mynd / Haraldur Jónasson
Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og einna mest í lok vikunnar í tengslum við það norðanóveður sem gekk yfir Eyjarnar, en lögreglan fékk um 20 útköll sem rekja má til veðurhamsins.

Skemmtanahald helgarinnar var með ágætasta móti og flestir gestir skemmtistaðanna höguðu sér innan löglegra marka.

Tvö eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið. Síðdegis þann 30. október sl. var lögreglu tilkynnt um að tvær unglingsstúlkur hafi verið að krota á minnisvarðann um Oddgeir Kristjánsson á Stakkagerðistúni. Lögreglan hafi tal af stúlkunum og viðurkenndu þær verknaðinn og kváðust tilbúnar til að bæta það tjón sem þær ollu.

Aðfaranótt 3. nóvember sl. var lögreglu tilkynnt um mann sem hafði valdið skemmdum inni á salerni veitingastaðarins Volcano.

Fjórar kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum. Tveir ökumenn fengu sekt fyrir að hafa ekki öryggisbelti spennt í akstri, einn fékk sekti fyrir of hraðan akstur og þá var einn sektaður fyrir ólöglega lagningu ökutækis.

Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt í vikunni en engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum en eitthvað tjón varð á ökutækjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×