105 reknir í síðasta mánuði 7. nóvember 2012 11:34 Starfsfólk hjá Iceland Express var meðal annars sagt upp í síðasta mánuði.
Alls bárust Vinnumálastofnun tvær tilkynningar um hópuppsagnir í október mánuði síðastliðnum. Samtals misstu 105 manns vinnuna í þessum tveimur uppsögnum sem voru annars vegar í verslunarrekstri og hinsvegar í samgöngum. Þar er væntanlega um að ræða fyrirtækin Europris og Iceland Express, en fyrrnefnda fyrirtækið hætti starfsemi í mánuðinum og hið síðarnefnda rann inn í Wow Air sem kunnugt er. Þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem til hópuppsagna hefur komið, en í september var ein hópuppsögn tilkynnt Vinnumálastofnun og þá misstu vinnuna 31 einstaklingur í samgöngum og flutningum. Samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka virðast hópuppsagnir vera að skjóta upp kollinum á nýjan leik eftir að hafa verið á undanhaldi síðastliðið ár, en aðeins hefur verið tilkynnt um hópuppsagnir í fjórum mánuðum það sem af er þessu ári. Auk þeirra uppsagna sem tilkynnt hefur verið um núna í haust var 68 manns sagt upp í rannsóknar- og þróunarstarfsemi i júlí sl. Þá misstu 21 manns vinnuna í byggingariðnaði fyrr á árinu og 5 í fiskvinnslu. Samtals hefur því 237 manns verið sagt upp störfum það sem af er þessu ári í hópuppsögnum. Þar af voru 45% í samgöngum og flutningum, 29% í rannsóknum og þróunarstörfum, 12% í verslun, 9% í byggingariðnaði og 5% í fiskvinnslu. Þrátt fyrir þessar þrjár hópuppsagnir í haust eru uppsagnir af þessu tagi á undanhaldi, en á sama tíma í fyrra hafði 680 manns verið sagt upp störfum í samtals 10 hópuppsögnum samkvæmt Íslandsbanka. Hópuppsagnir jukust gríðarlega í aðdraganda og kjölfar hrunsins. Þannig misstu 2.260 manns vinnu sína í hópuppsögnum árið 2008, 4.246 manns árið 2009 og 953 árið 2010. Frá ársbyrjun 2008 og til dagsins í dag hafa 8.594 störf verið lögð niður með hópuppsögnum. Stærstur hluti þessara starfa hefur verið í mannvirkjagerð eða 41% af heildinni.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira