Mjólkin er 35 milljarða virði GS skrifar 7. nóvember 2012 11:39 Mjólkurkvótinn er nokkuð verðmætur. Mynd/ Stefán.
Mjólkurkvóti bænda, sem þeir geta veðsett með svipuðum hætti og útgerðarmenn fiskikvótann, er nú metinn á tæpa 35 milljarða króna og fer vaxandi. Á nýafstöðnum tilboðsmarkaði með mjólkurkvóta, reyndist raunvirðið vera 305 krónur fyrir lítrann, og hafði þá hækkað um fimm krónur frá síðasta markaði í vor. Heildarmjólkurkvótinn, sem ríkið greiðir með, er um 114 milljónir lítra á ári, þannig að heildarverðmætið er tæpir 35 milljarðar. Eftirspurn er líka meiri en framboð, þannið að ólíklegt má telja að kvótinn lækki í verði í fyrirsjáanlegri framtíð. Í mjólkurbransanum er kvótinn kallaður greiðslumark, en það er tiltekið mjólkurmagn sem veitir rétt til beinnar greiðslu úr ríkisjóði. Þennan kvóta, eða greiðslumark, geta bændur veðsett í lánastofnunum með þeim hætti að gefa lánastofnunum veð í jörðinni, eða mannvirkjum, en með þeim fyrirvara að þeir megi ekki ráðstafa mjólkurkvótanum án þeirra samþykkis. Í sjávarútveginum taka bankarnir veð í skipum eða mannvirkjum, sem er líka óbeint veð í kvótum, því útgerðarmenn mega ekki heldur ráðstafa kvótunum án samþykkis bankanna. Þetta eru því í fljótu bragði svipuð kerfi, nema hvað sá grundvallar munur er á þeim, að bændur fá greitt úr ríkissjóði fyrir að framleiða upp í mjólkurkvótana, en útvegsmenn greiða hinsvegar í sama ríkissjóð, fyrir að fyrir að fá að veiða upp í fiksikvótana.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Sjá meira