Innlent

Jóhanna óskar Obama til hamingju

Jóhanna segir mikla og góða vináttu hafa ríkt á milli Íslands og Bandaríkjanna.
Jóhanna segir mikla og góða vináttu hafa ríkt á milli Íslands og Bandaríkjanna.
Forsætisráðherra hefur sent forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, heillaóskabréf vegna sigurs hans í forsetakosningum í Bandaríkjunum í gær að því er fram kemur á heimasíðu ráðuneytisins.

Þar segir: „Milli ríkjanna hefur ríkt mikil og góð vinátta um áratuga skeið og leggur forsætisráðherra í bréfi sínu áherslu á áframhaldandi gott samstarf og samvinnu, bæði tvíhliða og á alþjóðavettvangi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×