Karl Garðarsson býður sig fram fyrir Framsókn 7. nóvember 2012 12:47 Karl Garðarsson.
Karl Garðarsson, fjölmiðlafræðingur og fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2, gefur kost á sér í 1. til 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir alþingiskosningarnar næsta vor. Í tilkynningu frá Karli segir: Hugmyndafræði Framsóknarflokksins byggir á traustum grunni þar sem áhersla er lögð á manngildi, jafnræði og samfélagslega ábyrgð. Flokkurinn er laus við þær öfgar sem einkenna flokka lengst til hægri og vinstri í íslenskum stjórnmálum. Þá hefur Framsóknarflokkurinn lagt fram markvissar og skynsamlegar tillögur í helstu málaflokkum. Nauðsynlegt er að breyta verklagi á Alþingi og auka tiltrú almennings á löggjafaþingið. Það verður einungis gert með viðhorfsbreytingu þeirra sem sitja á Alþingi, þannig að þingmenn hinna ýmsu flokka sameinist um að leysa þau brýnu úrslausnarmál sem blasa við. Karl leggur áherslu á málefni heimilanna og skuldastöðu þeirra, þar sem afnám verðtryggingar lána er forgangsmál. Lækka þarf skatta og tolla á fyrirtæki og einfalda skattkerfið. Hvetja þarf til atvinnusköpunar með markvissum aðgerðum sem miða að því að fjölga störfum til muna á næsta kjörtímabili. Þá þarf að snúa þeirri óheillaþróun við sem verið hefur í heilbrigðismálum, þar sem kerfið er komið að þolmörkum. Afnema þarf gjaldeyrishöft sem allra fyrst þannig að eðlileg viðskipti geti átt sér stað við önnur lönd. Karl Garðarsson hefur um aldarfjórðungs reynslu úr íslenskum fjölmiðlum. Hann var fréttastjóri Stöðvar 2 um árabil, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Norðurljósa, ritstjóri og framkvæmdastjóri Blaðsins/24 Stunda og útgáfustjóri prentmiðla Árvakurs, svo fátt eitt sé nefnt. Karl er með M.A gráðu í fjölmiðlafræði frá Minnesota háskóla, B.A. gráðu í Almennri bókmenntafræði og ensku frá Háskóla Íslands, hefur lokið tveggja ára námi í rekstrar- og viðskiptafræði frá sama skóla og er að ljúka B.A námi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík næsta vor.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Fréttir Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum Sjá meira