Yfirlýsing Vilhjálms: Ætla mér að vinna áfram að lausn þessa máls 8. nóvember 2012 19:55
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar og stjórnarformaður, hefur ákveðið að stíga til hliðar vegna skuldastöðu hjúkrunarheimilisins. Í yfirlýsingu segir hann að fulltrúaráðsfundur Eirar verði haldinn í nóvember þar sem gerður verður ítarleg grein fyrir stöðunni. Hann segir að vel yfirveguðu ráði sé það sitt mat, að framar öllu sé nú brýnt að byggja upp á ný traust bæði gagnvart lánadrottnum og skjólstæðingum. Hann ætlar áfram að vinna að lausn þessa máls.Yfirlýsingin í heild sinni:Erfiðleikar í rekstri húsrekstrarsjóðs Eirar eru miklir. Á þeim tíma eru margvíslegar skýringar, m.a. afleiðingar efnahagshrunsins og seinkun framkvæmda um nokkur ár á byggingu þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar í tengslum við Eirborgir sem hefur gert það að verkum að erfiðar reyndist að ráðstafa íbúðum í Eirborgum en á síðasta ári voru rúmlega 50 íbúðir lausar. Í dag eru þær um 30. Stjórn og starfsmenn félagsins hafa unnið af fullum heilindum frá miðju ári 2011 við að draga úr vandanum með verulegum hagræðingaraðgerðum en það hefur ekki dugað. Mikilvægt er að taka fram að rekstur hjúkrunarheimilisins stendur vel og þar er veitt afar góð þjónusta.En þegar upp er staðið ber stjórn félagsins endanlega ábyrgð á þeirri stöðu sem hún stendur andspænis. Fulltrúaráðsfundur Eirar verður haldinn í nóvember og þar verður gerð ítarleg grein fyrir stöðunni, með hvaða hætti stjórnin hefur brugðist við þessum vanda, ekki síst stöðu búseturétthafa.Við slíkar aðstæður standa gild rök til þess að stjórnin segi af sér. Það eru líka gild rök fyrir því að hún hopi ekki frá vandanum þegar hann er mestur. Mestu skiptir þó að horfa til framtíðarhagsmuna félagsins. Engin önnur sjónarmið mega ráða för. Að vel yfirveguðu ráði er það mitt mat að framar öllu sé nú brýnt að byggja upp á ný traust bæði gagnvart lánadrottnum og skjólstæðingum. Jafnframt er það mitt mat til framtíðar að það sé auðveldara fyrir nýja stjórn að byggja upp það traust.Ég hef á undanförnum áratugum barist fyrir hagsmunamálum eldri borgara með margvíslegum hætti og ætla mér að vinna áfram að lausn þessa máls. Sjálfur mun ég nú stíga til hliðar sem formaður Eirar.Vilhjálmur Þ. Vilhjálmssonformaður stjórnar Eirar
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira