Innlent

Ofurölvi og próflaus undir stýri

Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Suðurlandsvegi í gærkvöldi eftir að vegfarendur höfðu tilkynnt um einkennilegt aksturslag hans.

Skýringin reyndist sú að hann var ofurölvi. Hann var líka réttindalaus, eftir að hafa misst prófið fyrir samskonar athæfi áður.

Fjórir voru svo teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt, ýmist vegna ölvunar- eða fíkniefnaaksturs. Einn þeirra var vistaður í fangageymslum þar sem talsvert af ætluðu þýfi fannst í bíl hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×