Innlent

Alvarlegt vinnuslys á Þórhöfn

Tveir karlmenn slösuðust og annar þeirra alvarlega, þegar þeir féllu liðlega sjö metra niður af þaki Ísfélagsins á Þórshöfn á Langanesi undir kvöld í gær og lentu fyrst á kranabómu og höfnuðu síðan á steyptu plani.

Ísing myndaðist skyndilega á þakinu, þar sem þeir voru að vinna, og rann annar þeirra af stað, en hinn reyndi að koma honum til hjálpar og féll þá líka fram af þakinu.

Þeir voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur og liggur annar þeirra á gjörgæsludeild Landsspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×