Innlent

Búast við 7,6 milljarða afgangi á rekstri borgarinnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gert er ráð fyrir 7,6 milljarða króna afgangi hjá Reykjavíkurborg á næsta ári, samkvæmt frumvarpi Reykjavíkurborgar til fjárhagsáætlunar. Þar er um að ræða samstæðureikning en gert er ráð fyrir að A-hlutinn sem er hinn eiginlegi rekstur borgarinnar skili 329 milljón króna afgangi á árinu 2013.

Í tilkynningu sem Reykjavíkurborg sendi frá sér vegna frumvarpsins kemur fram að engar niðurskurðaraðgerðir eru fyrirhugaðar á árinu 2013. Reykjavíkurborg mun verja tæpum sjö milljörðum til fjárfestinga á árinu. Meðal stórra verkefna sem fyrirhuguð eru á árinu 2013 eru t.d. gagngerar endurbætur á Hverfisgötu sem munu hefjast á árinu.

Við vinnslu fjárhagsáætlunar hefur mjög verið litið til aðgerða á vinnumarkaði sem nauðsynlegt er að ráðast í á næsta ári enda hefur borgin tekið með ákveðnum hætti á málefnum atvinnulausra. Miðað við óbreytt ástand munu framlög til fjárhagsaðstoðar í Reykjavík hækka um rúman milljarð króna og er tekið tillit til þess í frumvarpinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×