Innlent

Kæra til lögreglu eftir andlát í sumar

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Atvikið hefur verið kært til lögreglu.
Atvikið hefur verið kært til lögreglu. Mynd/ Óskar.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkti á síðasta fundi sínum að kæra mál til lögreglunnar sem snertir sundlaugina í Þjórsárdal. Dauðsfall var í sundlauginni í sumar, þegar erlendur ferðamaður lést þar. Á fundi nefndarinnar var lagt fram minnisblað heilbrigðisnefndarinnar, sem er samantekt yfir upplýsingar og samskipti milli forsvarsmanna Þjórsárdalslaugar og HES í ljósi upplýsinga um rekstur laugarinnar í sumar. Nefndin fór einnig yfir ítargögn í málinu.

„Í ljósi þess að fyrir lá ítrekuð afstaða HES um starfsleyfisskyldu og úttekt áður en starfsemi hæfist og villandi upplýsingar frá forsvarsmönnum laugarinnar er lagt til að málið verði kært til lögreglu vegna brota á starfsleyfisskyldu", segir orðrétt í bókun nefndarinnar. Rekstararaðili laugarinnar í Þjórsárdal var kærður, en Landsvirkjun gaf sveitarfélaginu laugina á sínum tíma sem leigir hana áfram til einkaaðila sem sér um rekstur.

Einnig má lesa um málið á vefnum dfs.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×