Innlent

Umferðaróhöpp í Kömbunum

BBI skrifar
Bílvelta varð í Kömbunum í kvöld. Ökumaður var einn í bíl og á leið yfir Hellisheiði þegar óhappið varð. Ökumaður komst sjálfur út úr bifreiðinni og beið eftir sjúkraflutningamönnum í annarri bifreið sem ekið var þar hjá. Maðurinn var ekki þungt haldinn en bíllinn töluvert skemmdur. Bifreiðin valt klukkan rúmlega tíu í kvöld samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Þetta var annað umferðaróhappið í Kömbunum í kvöld, en nokkru fyrr höfðu ökumenn lent í vandræðum vegna hvassviðris. Í hvorugu óhappinu slösuðust ökumenn eða farþegar illa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×