Innlent

Eldur laus í bökunarofni Myllunnar

Eldur kviknaði í bökunarofni brauðgerðarinnar Myllunnar í Skeifunni í gærkvöldi og var fjölmennt slökkvilið sent á vettvang.

Starfsfólk brást hinsvegar skjótt við og hafði slökkt eldinn þegar liðið kom á vettvang, en það gekk úr skugga um að hvergi logaði í glæðum. Við fyrstu skoðun var tjónið ekki talið umtalsvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×