Innlent

Hæstiréttur vísar frá kröfu Samherja

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja.
Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu útgerðarfyrirtækisins Samherja um að rannsóknaraðgerð Seðlabankans í gjaldeyrissvikamáli yrði dæmd ólögmæt.

Í tengslum við rannsókn Seðlabankans á meintum gjaldeyrisbrotum Samherja var bókhaldskerfi haldlagt á grundvelli dómsúrskurðar. Síðar kom í ljós að aðgangur Seðlabankans að kerfinu hafði verið takmarkaður og hluti bókhaldsgagnanna læstur. Vegna þessa virkjaði Seðlabankinn svokallaðan varaaðgang að bókhaldskerfinu til að fá fullan aðgang að því. Í málinu kröfðust Samherji að rannsóknaraðgerðin yrði dæmd ólögmæt og að Seðlabankanum yrði gert að loka fyrir aðganginn aftur og eyða öllum afritum sem kynnu að hafa verið gerð af gögnum á hinu lokaða svæði.

Hæstiréttur og Héraðsdómur vísuðu bæði kröfunni frá dómi þar sem athöfnin var þegar afstaðin. Þá var hafnað kröfu Samherja um að SÍ yrði gert að loka fyrir aðganginn aftur og eyða afritum af gögnum, enda hafði heimild Seðlabankans til að skoða bókhaldsgrunninn ekki verið bundin takmörkunum. Þá var jafnframt talið að gefa yrði Seðlabankanum nokkuð svigrúm til að meta hvort gögnin hefðu þýðingu fyrir rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×