Innlent

Heitavatnslaust á Akranesi

BBI skrifar
Mynd/Getty
Vegna bilunar í aðveituæð verður ekkert heitt vatn á Akranesi fram eftir nóttu. Vinnuflokkar Orkuveitunnar vinna að viðgerð.

Orkuveitan biðst velvirðingar á óþægindunum en bendir húsráðendum á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysum eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju og hafa glugga og dyr ekki opna lengur en þörf krefur svo síður kólni í húsum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×