Innlent

Leita í Skagafirði

BBI skrifar
Björgunarsveitir voru kallaðar út í Skagafirði í kvöld eftir að maður skilaði sér ekki úr fjárleitum. Fjölmennt lið er nú á svæðinu, göngumenn, fjórhjól, jeppar og vélsleðar.

Maðurinn fór við annan mann í fjárleitir í morgun og ætluðu þeir að hittast við upphafsstað í grennd við Þorljótsstaðafjall núna seinnipartinn. Þegar maðurinn skilaði sér ekki hóf samferðamaður hans eftirgrennslan. Hann komst hins vegar ekki aftur upp fjallið vegna veðurs. Hann kallaði því eftir liðsauka.

Óveður er á svæðinu, mikið rok og rigning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×