Keypti peysu af Dorrit til styrktar fötluðum börnum Boði Logason skrifar 20. október 2012 20:23
Kona sem keypti peysu af Dorrit Moussaeiff forsetafrú á uppboði til styrktar sumarbúðum fatlaðra barna, segir að gott sé að geta styrkt gott málefni á þennan hátt. Ekki skemmir heldur fyrir hversu glæsileg forsetafrúin er. Uppboðið var haldið í kjölfar þess að góðgerðarsamtökin Kids Parliament veittu Freyju Haraldsdóttur mannúðarverðlaun fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum fatlaðra. Margt var um manninn í Norðuljósasal Hörpunnar en þar voru meðal annars Jakob Frímann stuðmaður, Simmi og Jói á Fabrikunni og Kormákur og Skjöldur sem stjórnuðu uppboðinu af mikilli festu.Er þetta í fyrsta sinn sem þið gerið svona? „Já. Ég hef aldrei haldið uppboð áður. Við vorum að rifja upp einhver tilþrif því maður hefur séð svo marga þætti. En þetta er allt öðruvísi," segir Skjöldur. Alls voru fimmtán hlutir boðnir upp - þar á meðal kvöldverður með stjörnukokknum Hrefnu Sætran, VIP-miðar á leik Manchester United og Glatasaray í meistaradeild Evrópu og árituð knattspyrnutreyja af spænska fótboltalandsliðinu, sem fór á 180 þúsund krónur. En rúsínan í pylsuendanum voru tvær peysur í eigu forsetafrúarinnar sem fóru báðar á þrjátíu þúsund krónur. Sigrún Bárðardóttir keypti aðra peysuna. „Einstaklega gaman að styrkja svona göfugt málefni. Gaman að koma hérna og fá tækifæri til þess að taka þátt í því. Dorrit er bara svo frábær og hefur gert svo mikið fyrir Ísland. Svo er hún líka einstaklega flott kona. Við getum ekki neitað því," segir Sigrún. Ertu búin að ákveða hvenær þú ætlar að fara í peysuna góðu? „Ég held það verði bara við fyrsta tækifæri. Þetta er alveg gullfalleg peysa," segir hún.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Sjá meira