Innlent

Sagðist vera grískur ferðamaður

Á föstudag var karlmaður stöðvaður við komuna til landsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en hann framvísaði fölsuðum skilríkjum. Maðurinn, sem var að koma frá Kaupmannahöfn, framvísaði grísku ferðaskilríki, sem lögreglumenn sáu að átt hafði verið við. Hann var færður á lögreglustöð, þar sem hann viðurkenndi að hann væri alls ekki grískur heldur annarar þjóðar. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×