Minningarstofa á Þjóðminjasafninu Karen Kjartansdóttir skrifar 23. október 2012 19:29 Steinunn Guðmundsdóttir
Minningarstofa á Þjóðminjasafninu sem sérstaklega er ætluð eldri borgurum með minnisglöp hefur gefist vel, það er að segja stofu þar sem tímabilið 1955 til 1965 er allsráðandi. Minningarstofa á Þjóðminjasafninu sem sérstaklega er ætluð eldri borgurum með minnisglöp hefur gefist vel. Herbergið er einkum ætlað fólki sem fæddist í kringum 1930. Þar inni er eru hlutum safnað sem tengjast viðfangsefnum dagslegs lífs á tímabilinu 1955-1965, eða á þeim tíma þegar þessi aldurshópur var að byrja sín búskaparár. Herbergið er öllum opið en safnkennararnir segja gleðilegustu heimsóknirnar séu þegar um það bil sex eldri borgarar setjast þarna inn í næði og rifja upp gamla tíð. Vinsælt er að starfmenn dvalarheimila panti þar tíma fyrir fram og misjöfn viðfangsefni séu tekin fyrir hverju sinni. Herbergið miði helst að fólki sem ólst upp á Reykjavíkursvæðinu en fólk af landsbyggðinni hafi einnig litið í heimsókn og þá hafi aðrir munir verið fundnir til. „Það er misjafnt hvað við gerum. Stundum höfum við haft hér uppdekkað kaffihlaðborð og þá setjumst við niður og spjöllum saman. Hugmyndin er sú að fólki líði vel hérna inni og hér sé eitthvað sem veki upp minningar til dæmis frá þeim tíma sem þau voru að hefja sinn búskap. Hér leikum við líka tónlist, oft er sungið, við skoðum hluti og það má fletta blöðum og svo spjöllum við bara saman," segir Steinunn Guðmundardóttir, safnkennari. Hún segir símaskránna svo alltaf slá í gegn. „Það er gaman að fletta upp sínu nafni, nafni foreldra sinna, rifja upp símanúmer og heimilisföng." Svo er skipst á uppskriftum, rætt um báta og slúðursögurnar af böllunum eru auðvitað rifjaðar upp. „Þetta rifjar náttúrulega upp minningar og það vekur upp öryggistilfinningu en starfsfólk af dvalarheimilum sem hefur komið hingað með fólk nefnir svo að það sé mikilvægt að fólki líði vel annars staðar en heima fyrir. Það að rifja upp skemmtilega tíma, svo sem böllin, nú eða barnsfæðingar eða annað sem hafði mikil áhrif á fólk veki upp svo mikla gleði sem oft vari í marga daga á eftir," segir Helga Einarsdóttir, safnakennari. Herberginu er þannig ætlað að bæta þjónustu við stækkandi þjóðfélagshóp en eftir nokkur ár mun þurfa að færa herbergið aðeins fram í tímann og er þegar farið að huga að munum sem mun vekja upp notalegar minningar hjá næstum kynslóðum.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira