Innlent

Kvíðir ekki vistinni á Kvíabryggju

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Haraldur Sigurðsson er einn virtasti eldfjallafræðingur á Íslandi.
Haraldur Sigurðsson er einn virtasti eldfjallafræðingur á Íslandi.
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að Ítalir fari illa með sína vísindamenn. Þetta segir hann í tilefni þess að í fyrradag voru sjö vísindamenn dæmdir í fangelsi fyrir að bregðast rangt við fyrirboðum um skjálfta árið 2009.

„Sjömanna nefndin hélt almennan fund með borgurum hinn 31. mars 2009 og birti yfirlýsingu þess efnis, að það væri engin hætta á stórum skjálfta. Sex dögum síðar reið stóri skjálftinn yfir, 6,3 að stærð, með hörmulegum afleiðingum, eyðileggingu og dauða," segir Haraldur í boggi sínu sem hann birti í gær.

Haraldur segist þekkja vel einn af hinum dæmdu. Sá heitir Franco Barberi og er eldfjallafræðingur, sem hefur á seinni árum orðið einn áhrifamesti jarðvísindamaður á Ítalíu. „Við höfum áður starfað saman að málum sem snerta eldgos og eldgosahættu frá Vesúvíusi. Dómurinn í L´Aquila vekur margar spurningar og þær snerta okkur hér á Íslandi einnig. Er hægt að ætlast til að jarðvísindamenn geti spáð fyrir um stóra jarðskjálfta eða eldgos? Eiga vísindamenn yfirleitt að vera að gefa út yfirlýsingar til almennings um mál sem snerta hættuástand, þegar þeir hafa ekki nægileg gögn í höndum?" spyr Haraldur.

Haraldur segir að dómurinn frá því í fyrradag muni vafalaust hafa mikil áhrif á hegðun jarðvísindamanna á Ítalíu varðandi jarðvá á næstunni. Hann telur líklegt að enginn ítalskur fræðimaður fáist nú til að gefa yfirlýsingar eða spá um jarðvá í kjölfar þessa dóms. „Ég mun nú samt halda ótrauður áfram að birta mínar skoðanir á jarðvá, enda er Kvíabryggja hér alveg í næsta nágrenni við Stykkishólm og virðist vistin þar vera nokkuð góð," segir Haraldur í léttum dúr, en hann er forstöðumaður Eldfjallasafns í Stykkishólmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×