Vilja hámark á laun verkalýðsforkólfa 24. október 2012 21:00 Þór Saari.
Þór Saari mælti fyrir lagafrumvarpi á Alþingi í dag sem miðar að því að lögfesta reglu um hámarkslaun forsvarsmanna verkalýðsfélaga og hagsmunasamtaka launafólks þannig að þau geti aldrei orðið hærri en því sem nemur þreföldum lágmarkskjörum umbjóðenda sinna. Það eru þingmenn Hreyfingarinnar sem eru flutningsmenn frumvarpsins, en í tilkynningu sem þeir sendu fjölmiðlum segir að þeir telji mikilvægt að sett sé hámark á laun forsvarsmanna verkalýðsfélaga og hagsmunasamtaka launafólks. Að baki slíku hámarki séu rík sanngirnissjónarmið að mati þingflokksins enda launin greidd úr sameiginlegum sjóðum verkalýðsins. Flutningsmenn telja jafnframt rétt að vekja athygli á því að setning hámarks sem er á þennan hátt bundið lágmarkskjörum getur verið forsvarsmönnum mikilvægur hvati til að berjast fyrir bættum rétti félagsmanna þar sem hækkun lágmarkslauna getur leitt til beinnar hækkunar launa þeirra. Í framsögu sinni kom Þór Saari inn á þá risavöxnu gjá sem hann telur að hafi myndast á milli forsvarsmanna launþegahreyfingarinnar og almennra félagsmanna. Hann tók dæmi um risavaxið einbýlishús fyrrverandi forseta ASÍ á Arnarnesinu í því sambandi. Þá gerði hann nýafstaðið þing ASÍ að umfjöllunarefni og velti upp þeirri spurningu hvort forsvarsmenn launþegahreyfingarinnar séu yfir höfuð að gæta hagsmuna launþega. Máli sínu til stuðnings rifjaði Þór upp hvernig fór fyrir tillögu Vilhjálms Birgissonar, formanns VLFA, um afnám verðtryggingar á þingi ASÍ, en tillagan var felld. Sagði Þór verðtrygginguna „mesta bölvald sem íslenskt launafólk hefur þurft að búa við undanfarna áratugi", hún hefði sett þúsundir heimila á hausinn og stefnt tugþúsundum annarra í alvarlega greiðsluerfiðleika. Í beinu framhaldi spurði Þór: „Hvað er í gangi hjá Alþýðusambandi Íslands!?"
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira