Innlent

Hundruð leitað til Símans vegna stolinna farsíma

Farsímar. Myndin er úr safni.
Farsímar. Myndin er úr safni.
Alls hafa þrjú hundruð einstaklingar leitað til Símans á síðustu sex mánuðum vegna stolinna farsíma. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, var í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag þar sem hann var spurður út í þjófnað á farsímum í dag.

Sævar segir líklega aðeins brot af þeim sem lenda í því að farsímum þeirra sé stolið leiti til Símans, en fyrirtækið getur kannað hvort símtækið sé í notkun. Sé svo raunin þarf eigandinn að kæra þjófnaðinn til lögreglu sem aftur óskar eftir upplýsingum frá símafyrirtækinu til þess að handsama þjófinn.

Sævar segir raunar fleiri ráð til. Þannig séu til smáforrit (öpp) sem er hægt að hlaða niður í snjallsímana i þeim tilgangi að rekja staðsetningu símanna auk þess sem það eru til forrit sem vernda persónuleg gögn inni á símunum.

Sævar segir þjófnuðum raunar ekki hafa fjölgað þó símastuldur sé alengur. Hann bendir hinsvegar á að símtæki í dag eru orðin mjög dýr og fólk reiðir sig mun meira á símana í dag heldur það gerði fyrir nokkrum árum síðan.

Hægt er að hlusta á fróðlegt viðtal við Sævar hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×