Innlent

Vann hátt í 30 milljónir í kvöld

Það er heppinn Akureyringur sem er tæplega 28 milljónum ríkari eftir drátt Víkingalottós í kvöld. Sá fékk hinn alíslenska bónusvinning en aðalvinningurinn rann ekki út.

Sá hljóðaði upp á tæplega 160 milljónir króna. Það verður því tvöfaldur pottur næst. Sá sem fékk bónusvinningin keypti miðann í Hagkaup á Furuvöllum á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×