Skjóta hlífiskildi yfir íslensku sauðkindina BBI skrifar 25. október 2012 12:36
Bændasamtökin birtu á dögunum stutta heimildarmynd um sauðfjárrækt á Íslandi. Myndinni er ætlað að auka vegsemd íslensku sauðkindarinnar í augum þjóðarinnar eftir heimildarmynd Herdísar Þorvaldsdóttur um gróðureyðingu vegna lausagöngu búfjár. Eftir að mynd Herdísar kom út og var sýnd í Ríkissjónvarpinu þótti íslenska sauðkindin eiga undir högg að sækja. Þá brugðust Landssamband sauðfjárbænda og Bændasamtök Íslands við með því að gera aðra heimildarmynd, sem nálgast má á hlekknum hér að ofan. „Við réðumst í gerð þessarar myndar í kjölfarið á mynd Herdísar Þorvaldsdóttur sem okkur fannst dálítið einhliða áróður gegn sauðfjárrækt í landinu. Við erum svona að koma með sjónarmið bænda," segir Tjörvi Bjarnason á útgáfu- og kynningasviði Bændasamtaka Íslands. Í myndinni er fjallað um lausagöngu búfjár og sauðfjárbeit. Fram kemur m.a. að sauðfé hefur fækkað á landinu um 45% á síðustu 35 árum. Einnig er bent á að þróun gróðurs á Íslandi er jákvæð í dag, þ.e. landið er að gróa meira en það blæs upp samkvæmt rannsóknum. Í mynd sinni reyna bændur að bregða ljósi á ýmsar staðreyndir sem ekki komu fram í mynd Herdísar að þeirra mati. „Okkur fannst þessi umfjöllun ekki vera málefnaleg. Við berum þó virðingu fyrir skoðunum Herdísar þó við séum ekki sammála þeim. Það er að mörgu leyti hægt að dást að baráttu hennar gegnum árin," segir Tjörvi.Vilja komast í Ríkissjónvarpið Bændasamtökin hafa þegar farið fram á að Ríkissjónvarið sýni heimildarmyndina. „Það verður spennandi að sjá hvað þeir segja við því" segir Tjörvi og bendir á að heimildarmynd Herdísar, Fjallkonan hrópar á vægð, hafi verið sýnd á sunnudagskvöldi á besta tíma. Hann vonar að bændur fái svipað tækifæri.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lækkar eigin laun Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira