Innlent

Skjóta hlífiskildi yfir íslensku sauðkindina

BBI skrifar
Bændasamtökin birtu á dögunum stutta heimildarmynd um sauðfjárrækt á Íslandi. Myndinni er ætlað að auka vegsemd íslensku sauðkindarinnar í augum þjóðarinnar eftir heimildarmynd Herdísar Þorvaldsdóttur um gróðureyðingu vegna lausagöngu búfjár.

Eftir að mynd Herdísar kom út og var sýnd í Ríkissjónvarpinu þótti íslenska sauðkindin eiga undir högg að sækja. Þá brugðust Landssamband sauðfjárbænda og Bændasamtök Íslands við með því að gera aðra heimildarmynd, sem nálgast má á hlekknum hér að ofan.

„Við réðumst í gerð þessarar myndar í kjölfarið á mynd Herdísar Þorvaldsdóttur sem okkur fannst dálítið einhliða áróður gegn sauðfjárrækt í landinu. Við erum svona að koma með sjónarmið bænda," segir Tjörvi Bjarnason á útgáfu- og kynningasviði Bændasamtaka Íslands.

Í myndinni er fjallað um lausagöngu búfjár og sauðfjárbeit. Fram kemur m.a. að sauðfé hefur fækkað á landinu um 45% á síðustu 35 árum. Einnig er bent á að þróun gróðurs á Íslandi er jákvæð í dag, þ.e. landið er að gróa meira en það blæs upp samkvæmt rannsóknum.

Í mynd sinni reyna bændur að bregða ljósi á ýmsar staðreyndir sem ekki komu fram í mynd Herdísar að þeirra mati.

„Okkur fannst þessi umfjöllun ekki vera málefnaleg. Við berum þó virðingu fyrir skoðunum Herdísar þó við séum ekki sammála þeim. Það er að mörgu leyti hægt að dást að baráttu hennar gegnum árin," segir Tjörvi.

Vilja komast í Ríkissjónvarpið

Bændasamtökin hafa þegar farið fram á að Ríkissjónvarið sýni heimildarmyndina. „Það verður spennandi að sjá hvað þeir segja við því" segir Tjörvi og bendir á að heimildarmynd Herdísar, Fjallkonan hrópar á vægð, hafi verið sýnd á sunnudagskvöldi á besta tíma. Hann vonar að bændur fái svipað tækifæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×