Innlent

Fagnar ákvörðun Íslandsbanka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Helgi Hjörvar er formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Helgi Hjörvar er formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Mynd/ Stefán.
Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, fagnar þeim skrefum sem Íslandsbanki tók í morgun við að hefja endurútreikning lána. Nefndin fundaði í morgun með Fjármálaeftirlitinu um gengistryggð lán og heldur áfram að funda eftir hádegi.

Á meðal þess sem var á dagskrá fundarins var hugmynd sem Guðlaugur Þór Þórðarson nefndarmaður reifaði um daginn að fá reiknivél fyrir lántakendur til að sýna fram á hverjar eftirstöðvar lána eru. „Við ræddum við Ríkisendurskoðanda mögulega útfærslu á því að fá óháða reiknivél fyrir lántakendur og við ætum að kanna ákveðna möguleika í framhaldi af því til að tryggja að það geti orðið," segir Helgi.

„Síðan vorum við að fara yfir afstöðu Lýsingar og ýmsar spurningar í tengslum við Lýsingu," segir Helgi. Spurt hafi verið hvernig FME hafi tryggt það að viðskiptavinir Lýsingar fái endurgreiðslur eftir því sem þeir kunna að eiga rétt á.

Þá var ákvörðun Íslandsbanka um að hefja endurreikning lána líka rædd. „Þetta er jákvætt. Þeir eru að taka inn í þetta bílalán hjá sér sem aðrir hafa verið að efast um að féllu undir dóminn," segir Helgi. Þetta staðfesti líka það sem haldið hefur verið fram síðastliðna viku að bönkunum er ekkert að vanbúnaði að hefja endurútreikning strax.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×