Innlent

Losuðu tarf úr girðingarflækju

Tarfurinn beið hinn rólegasti á meðan meðlimir björgunarfélagsins losuðu hann úr girðingarflækjunni.
Tarfurinn beið hinn rólegasti á meðan meðlimir björgunarfélagsins losuðu hann úr girðingarflækjunni. Mynd/Björgunarfélag Hornafjarðar
„Hann var sprækur en um leið maður nær að setjast á kviðinn á þeim þá detta þeir niður og verða rólegir," segir Þröstur Ágústsson, meðlimur í Björgunarfélagi Hornafjarðar, sem aðstoðuðu tarf sem var fastur í girðingu hjá Firði í Lóni.

„Þetta er nú daglegt brauð hérna en þetta var fyrsta hreindýraútkall haustins. Þeir festa sig annað slagið í girðingum og ná þá að rífa staurana upp. En þessi hefur líklega verið fastur í einn dag eða svo," segir hann. Það var Umhverfisstofnun sem bað björgunarfélagið að hjálpa tarfinum.

Þessa stórskemmtilegu mynd má sjá hér til hliðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×